Sigur

Jaya

13.01.2008 11:47:05 / jaya

Heilsuklúbbur

Gleðilegt nýtt ár!!!

Staðan hjá mér er sú að ég er enn í 80 kg., n.t.t. 82 kg, og ætla núna að koma mér í mjög gott form. Ég kynntist frábærum strák sem er einkaþjálfari og Herbalifedreifingaraðili. Ég nefninlega hef svo lítinn tíma vegna vinnu að próteinsheikarnir henta mér rosalega vel - svo ég tali nú ekki um öll ljúffengu súkkulaðipróteinstykkin.... en sem sagt - ég náði var komin upp í 84 kg og náði mér á tveimur vikum niður í 79,9 með Herbalife... var þá svo hamingjusöm að ég svindlaði og svindlaði... fékk mér páskaeggið frá því í mars sl um jólin og endaði þau með stæl í 85 kg! svo nú er að detta ekki í gamla farið og ég er byrjuð aftur en í þetta sinn með Herbalife og ég vona að þið fyrirgefið mér það :)

Ég er sem sagt komin niður um 1,6 kg á viku og held ótrauð áfram. Mig langar rosalega að stofna heilsuklúbb sem hittist 1 sinni í viku og einkaþjálfarinn kæmi og myndi mæla okkur - allt frítt. Það er ekki skylda að vera á Herbalife til að taka þátt en ég mun sem sagt vera á Herbalife og sel slíkt ef einhver vill. Ég hef nefninlega aldrei upplifað að slökkt væri á matarlönguninni fyrr en ég prófaði þennan sheik, ótrúlegt, svo finnst mér svo gott að þetta er allt unnið úr jurtum og rosa heilsusamlegt í réttum hlutföllum til að byggja upp líkamlega og andlega heilsu.... ég hef nefninlega ekki svo mikinn pening og tíma til að raða þessu saman sjálf samkvæmt RDS til að byrja með.

En ef einhver þarna úti langar að hittast einu sinni í viku í göngu og kaffi á eftir í Garðabænum auk mælingar þá er netfangið mitt fjolan@creo.is og síminn 892-8022. Ég held að saman stöndum við sterkari og svo finnst mér svo gaman að spjalla við aðra í sömu sporum og hvetja til dáða :)

Knús,

Fjóla 33 ára
892-8022/fjolan@creo.is


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 16:49:45 / jaya

Takk fyrir mig :)

Elskurnar, takk fyrir allar stuðninginn! Ég er hætt í megrun í bili, er mjög sátt við stöðuna hjá mér í dag, er aðeins 1,5 kg frá kjörþyngd og ætla einbeita mér að því að halda henni - borða hollt og jafnvel fara meira út í lífrænar áherslur. Svo má restin af kílóunum bara renna af í rólegheitunum :)

Það er aldrei að vita að ég bloggi aftur - ef þið viljið að ég sendi ykkur comment þegar það gerist þá endilega skrifið ykkur hér fyrir neðan. Hafið það rosalega gott, hugsið vel um sjálfar ykkur og munidð eftir jákvæðninni og brosinu :)

Baráttukveðjur, luv, Jaya

ps. hlaupaprógrammið sem ég er á og lofaði frá nike.com er á eftirfarandi vefslóð undir training schedules (þá hleðst niður pdf skjal með áætlun):
http://www.nike.com/europerunning/?ref=http://www.nike.com&l=en_EU#train|train_tool 


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 23:40:14 / jaya

Nærandi tilvitnun - hjálparenglar

"Make yourself familiar with the angels and behold them frequently in spirit;
for without being seen, they are present with you."
- St. Francis De Sales


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 23:28:46 / jaya

Hundasýning

Ég og fallega tíkin mín erum að fara að keppa á hundasýningu á morgun í fyrsta sinn. Ég hlakka bara til og er ekkert smá ánægð með bróður minn sem ætlar að mæta á áhorfendapallinn og hvetja okkur. Það er nú ekki fyrir alla að mæta á hundasýningu! Ég er algjörlega komin með bakteríuna og er að bíða eftir öðrum hundi sem félagsskap fyrir mína litlu... já svona er að eiga engin börn, þá er bara að fjölga hundunum. Mér fannst einmitt svo frábært hjá spákonu sem ég fór til í vikunni, hún var nú alveg út að aka blessunin en sagði þó í lokin, "og þú átt eftir að eignast 3 hunda", lol !!!! Algjör snilld, sumir fá "já þú átt eftir að eignast 3 börn" en hjá mér þrír hundar takk! En viti menn þetta er nákvæmlega plainð í augnablikinu - mig langar nefninlega í Golden Retriever eftir svona 5 ár...

Hundakveðja, jaya


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 19:01:59 / jaya

Á fullu í ræktinni

Frá því ég byrjaði í ræktinni hef ég þyngst - ég held þó ótrauð áfram og fylgi hlaupaprógramminu út í ystu æsar. Einhver sagði að vöðvar væru þyngri en fita svo ég hlít bara að vera að massast svona rosalega upp hehehe... smá svindl í gæsuninni síðustu helgi sem kenndi mér fína lexíu. Ætlar maður ekkert að hætta í þessu svindleríi.

Ég veit um eina sem náði af sér einhverjum tugum kílóa á 2ja ára tímabili. Hún var í kúrnum í 3 mánuði í senn, tók svo frí í 3 mán og byrjaði svo aftur í 3 o.s.frv. Þetta gerði hún skv lækni sem hún þekkti, til að halda kílóunum frekar frá sér... sel það ekki dýrar en ég keypti það, en hún er gorgeous í dag! Ég var nefninlega að spá í að taka 3ja mánaða stífa törn án svindlerís...veit ekki alveg, ég treysti á þessi hlaup, þau hljóta að fara að skila árangri...

:)jaya


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 20:52:10 / jaya

Nærandi tilvitnun - framtíðin

"The surest way to predict the future is to invent it." - Stephen Post

Undanfarin ár hafa fólgið í sér góða lexíu fyrir mig. Hún er að líf okkar er í okkar höndum - við getum ekki breytt hvað aðrir gera en við getum breytt hvernig við bregðumst við því. Við erum ekki leiksloppar örlaganna heldur skapandi mannverur. Trúum á það besta fyrir okkur sjálf og aðra og stórir draumar geta ræst.

Hugsið vel um ykkur, luv jaya


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 15:32:29 / jaya

Þögn á vigtunardegi

Þegar ég þegi þunnu hljóði er það víst oftast þegar árangurinn er ekki sem skildi, en ég reyni að fylla alltaf inn vigtunartöluna þótt bloggið komi ekki inn. Ég er reyndar 178 cm á hæð og er farin að halda að líkaminn vilji ekki léttast meira enda komin nálægt kjörþyngd sem er 79 kg  og eigandinn all sáttur. Ég er hins vegar byrjuð á 5 km hlaupaprógramminu og stofnaði hlaupahóp í vinnunni sem aðhald og ekki nóg með það heldur erum við 4 samstarfsfélagar komin í the biggest looser samkeppni - hver er fyrstur í 5 kg (strákar 7 kg). Já, svo það er nóg af markmiðum í gangi. Mig langar mikið til að komast niður í 71 kg, það væri snilld. þá kemst ég aftur í gömlu fötin mín. En ég er ekkert stressuð á tíma svo ég er ekki gott viðmið á árangri DDV hehehe.... En hafið það rooooosalega gott um helgina stelpur! Framundan er víst smá svindl hjá mér í kvöld þar sem vinkona mín er að fara að gifta sig og við skálum í kampavíni :) Stend mig bara betur í göngunni á morgun. Þessi 80 kg eru allavega ekki velkomin takk fyrir ;) Takk fyrir stuðninginn!

Luv, jaya


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 22:32:49 / jaya

Hreyfing með haustinu

Já, nýjar áhersur á þessum bæ. Nú er á að hreyfa sig. Vinur minn í vinnunni prentaði út fyrir mig hlaupaáætlun af Nike.com sem er fyrir byrjendur sem stefna á 5 km. Hún er nokkuð sniðug og mér líkar sérstaklega vel við að áætlunin er sett niður á daga og miðast við 20 min í senn í byrjun. Ég þarf endilega að skella henni hér á vefinn hjá hinni hlaupaáætluninni. Sem sagt, haustið er komið og tími til kominn til að hreyfa sig.
Varðandi haustið...Eftir að hafa upplifað sumarið í september á Ítalíu á síðasta ári rann upp fyrir mér ljós. Já hvílík mistök að trúa því að sumarið sé einungis 3 mánuðir á ári.... Ég tók því þann pól í hæðina að neita því að sumarið væri búið fyrr en í lok september. Viti menn, ég er ekki frá því að ég sé hamingjusamari en vinnufélagarnir fyrir vikið, sem byrjuðu að velta sér upp úr skammdeginu í lok ágúst. Nei núna fyrst er haustið komið - meira að segja blómin út í garði eru sammála og standa enn í blóma með miklum myndarbrag.

Hlaupagleði til ykkar, jaya

ps. fyrsta vikan í prógramminu fyrir þá sem vilja taka þátt er eftirfarandi:

Mán 20 min; ganga 1 mín, skokka 1 mínútu (til skiptis í 20 mín)
Þri  hvíld
Mið 20 mín; ganga 1 mín, skokka 1 mín.
Fim hvíld
Fös 20 mín; ganga 1 mín, skokka 1 mín.
Lau hvíld
Sun Hjóla eða langur göngutúr (>30 mín)

Gangi ykkur vel :) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 21:59:00 / jaya

Nærandi tilvitnun - trú/faith

"When you come to the edge of all the light you have,
and are about to step off into the darkness of the unknown,
faith is knowing one of two things will happen:
There will be something solid to stand on,
or you will be taught how to fly."

~ Patrick Overton ~

Vá hvað þetta er fallegt... já, svona orð eru kröftug og gefandi. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 11:26:57 / jaya

Nærandi tilvitnun og vigtin!

:):) Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir heima hefur bloggið mitt ekki komið inn svo þið fáið smá mola með vigtunartölunum.

Léttingur 400 g! Allir dansa kónga..dadada da da (mjaðmahnykkur)! Jebb, ég held að 80 kg séu kvödd í bili 79,5 kg er staðreynd. Hrein snilld :)

smá hugarmoli...

"If you judge people, you have no time to love them." - Móðir Theresa

 

Luv, jaya 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 12:32:09 / jaya

Áfram liggur leiðin...

Lovely, halló 7x kg! 100 g farin og staðan er 79,9 - ég rétt slapp. Er bara ánægð með árangurinn og lofa enn betri árangri næst þar sem engin afmæli verða næstu helgi en 2 voru síðustu helgi. Í afmælum leyfi ég mér að fá mér kex með osti og vínber og jafnvel brauðrétt, það virðist það eina sem maður getur nartað í, en þið?

Vigtin var í 79,6 fyrir afmælin svo að ostaveislan hefur haft sín áhrif þó ég hafi reynt að sleppa öður í staðinn. En nú er krafturinn kominn og blind date framundan ;) Svo það þýðir ekkert annað en að standa sig. Takk fyrir kommentin - þið eruð æðislegar, við rúllum þessu upp!

Sólskinskveðja í rigningunni :)jaya


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 11:31:53 / jaya

Hugleiðingar

Status quo hjá mér þessavikuna enda bjór og hvítvín að baki um helgina - í hófi þó :) Ég leit yfir farinn veg í góðum félagsskap sem var að spá í danska kúrnum og sá að árangurinn síðan 11 júlí er nú ekki alveg samkvæmt áætlun. Málið er að ég er komin úr krísunni með því að kveðja 8 kílóin og nú er ég alveg "í chillinu" með þetta. Mér finnst ég eiginlega ekki vera í neinni megrun þó svo ég sneiði fram hjá nammi, sætindum og annarri óhollustu... sem er náttúrulega bara gott - nýr lífstíll. En til að ná betri árangri verð ég að hætta þessu svindleríi því það stoppar mann alveg um 2 viku a.m.k. Jebb people, nú er bara að tvíeflast því þó að ég sé sátt við að vera í þessu fram að jólum þýðir ekkert að vakna upp í desember í blessuðum 80 kílóunum enn þá ;) Baráttukveðjur, til ykkar og takk fyrir að halda þetta út með mér :)

Luv, jaya


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 22:31:51 / jaya

Nærandi tilvitnun - sjálfstraust

"Where there is confidence, there is Love.

Where there is Love, there is Peace.

Where there is Peace, there is Truth.

Where there is Truth, there is Bliss.

Where there is Bliss, there is God."

-Sai Baba

 Munum eftir að líta eftir því fallega í fari hvors annars og leyfa því að heyrast í orðum eða gjörðum. Þannig hjálpum við hvort öðru í upplifun sjálfstrausts og allt annað fylgir á eftir. Lykillinn er innra með okkur - og munum eftir að leyfa okkur að njóta hróssins, það er besti þakklætisvotturinn.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 19:33:20 / jaya

300 g farin!

Áfram mjakast á leiðinni, ég er nú orðin ansi kærulaus með þetta allt saman en vigtin mjakast þó niður. 300 g farin og staðan slétt 80 kg.... hvað er með þessi 80 kg! fer nú bara að dreyma þau á endanum ;) En það glitti þó í 70,6 kg á laugardaginn. Kannski ég þyfrti bara að bæta einum leikfimistíma við á laugardögum vo ég þyngist ekki um helgar...ekki svo vitlaust.
Kíki á ykkur kjútípæs :)jaya


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 10:58:13 / jaya

Nærandi tilvitnun

Sjáið nærandi heilræði frá Móðir Theresu.

 http://www.youtube.com/watch?v=cbLS-vivKf0


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagar s�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733851 dögum
Tenglar