Sigur

Jaya

06.09.2007 11:31:53 / jaya

Hugleiðingar

Status quo hjá mér þessavikuna enda bjór og hvítvín að baki um helgina - í hófi þó :) Ég leit yfir farinn veg í góðum félagsskap sem var að spá í danska kúrnum og sá að árangurinn síðan 11 júlí er nú ekki alveg samkvæmt áætlun. Málið er að ég er komin úr krísunni með því að kveðja 8 kílóin og nú er ég alveg "í chillinu" með þetta. Mér finnst ég eiginlega ekki vera í neinni megrun þó svo ég sneiði fram hjá nammi, sætindum og annarri óhollustu... sem er náttúrulega bara gott - nýr lífstíll. En til að ná betri árangri verð ég að hætta þessu svindleríi því það stoppar mann alveg um 2 viku a.m.k. Jebb people, nú er bara að tvíeflast því þó að ég sé sátt við að vera í þessu fram að jólum þýðir ekkert að vakna upp í desember í blessuðum 80 kílóunum enn þá ;) Baráttukveðjur, til ykkar og takk fyrir að halda þetta út með mér :)

Luv, jaya

Dídí skrifaði
Gangi þér vel duglega :)
Sigga Júlla skrifaði
Já, nákvæmlega, BERJAST!!
Heiða skrifaði
Já áfram áfram áfram:) Þú getur þetta svo vel :D
Mjóna skrifaði
Áfram áfram áfram....kannst við þetta...er búin að vera svona í 2 vikur (sneiða fram hjá og vera en samt ekki...) það gengur ekki lengur miklu minni árangur :-( en gangi þér vel skvís..fylgist spennt með.
Skelfan skrifaði
úff púff.. kannast við þetta!!!!! Hræðilegt hvað sukk getur eyðilagt mikið fyrir manni... En gangi þér vel.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagar s�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733841 dögum
Tenglar